Losun loftmengunarefna

Ýmis loftmengunarefni losna af mannavöldum út í andrúmsloftið ár hvert. Uppsprettur efnanna eru misjafnar. Undanfarna áratugi hefur dregið úr losun sumra loftmengunarefna meðan losun annarra hefur aukist.

Loftmengunarefni er unnt að flokka í þrennt. Losun þrávirkra lífrænna efna, þungmála og annarra loftmengunarefna.

Ítarlegar upplýsingar um losun loftmengunarefna á Íslandi síðan 1990 má nálgast í nýjustu landsskýrslu um losun loftmengunarefna á Íslandi sem falla undir LRTAP samninginn.