Fjölskyldustefna
Umhverfisstofnun vill stuðla að því að starfsfólk hafi sem best tækifæri til starfsframa, sé kleift að skilja á milli vinnu og fjölskyldulífs, samhliða því að sinna fjölskyldu og börnum og að geta notið einkalífs síns sem best í frítíma sínum. Til viðbótar lögbundnum réttindum vill stofnunin leggja sitt af mörkum til að ná fram framangreindum markmiðum.
- Umhverfisstofnun hefur sett sér almenn viðmið um sveigjanlegan vinnutíma, sem eiga við um allt starfsfólk og þarf ekki að sækja sérstaklega um
- Foreldrar geta óskað eftir lengingu á barnseignarleyfum þannig að leyfi spanni allt að eitt ár skv. samkomulagi við yfirmann og reglur Fæðingarorlofssjóðs
- Starfsfólk getur óskað eftir tímabundið minnkuðu starfshlutfalli eða auknum sveigjanleika til að geta sinnt börnum sínum eða vegna annarra sérstakra fjölskylduaðstæðna. Slík leyfi eru veitt til árs í senn
- Yfirmenn taka tillittil einstæðra foreldra / helgarforeldra þegar vaktatöflur eru gerðar (starfsfólk í þjóðgarði og á friðlýstum svæðum).
- Heimilt er að vinna heima að jafnaði einn dag í mánuði
- Mælst til þess að foreldrar ungra barna séu ekki boðaðir á fundi fyrir kl. 9:00 að morgni eða að þeir standi ekki lengur en til kl. 16:00 síðdegis nema með fyrirfram samþykki þess foreldris sem í hlut á.
- Börn starfsmanna eru velkomin á vinnustaðinn (skrifstofur) ef þannig stendur á hjá foreldri enda eru þau á ábyrgð þeirra. Dótakassar með afþreyingu eru í Reykjavík og á Akureyri.
- Umhverfisstofnun býður starfsfólki sínu launað leyfi f.h. á aðfangadag og gamlársdag til að njóta sem best samvista við fjölskyldu þessa daga.