Goðafoss í Þingeyjarsveit

Goðafoss í Skjálfandafljóti var friðlýstur sem náttúruvætti þann 11. júní 2020.

Goðafoss er einn af vatnsmestu fossum landsins. Hann greinist í tvo meginfossa og nokkra smærri. Ásýnd fossins er fjölbreytileg eftir vatnsmagni, veðurfari og árstíð. Fossinn er 9-17 m hár og um 30 m breiður.

Landið við vesturbakka Goðafoss heitir Hrútey og afmarkast hún af Hrúteyjarkvísl sem greinist frá Skjálfandafljóti ofan við Goðafoss en sameinast fljótinu aftur alllangt neðar.

Þjóðsaga segir að Þorgeir Þorkelsson Ljósvetningagoði hafi varpað goðalíkneskjum sínum í fossinn í kjölfar þess að honum hafi verið falið það hlutverk að ná lögsáttum milli heiðinna manna og kristinna og að hann hafi tekið upp nýjan sið. Af þessu á Goðafoss að hafa dregið nafn sitt.

Skoða fræðsludagskrá landvarða á Norðurlandi eystra sumarið 2022

Goðafoss er vinsæll ferðamannastaður og þangað kemur fjöldi ferðamanna allan ársins hring. Megin markmiðið með verndun svæðisins er að vernda sérstakar náttúruminjar, breytileika jarðmyndana og fossinn sjálfan, m.a. með því að viðhalda náttúrulegu vatnsrennsli í fossinn, vegna fegurðar og sérkenna og útivistargildis svæðisins.

Svæðið er 0,224 km2 að stærð.

Hvar er Goðafoss?

Goðafoss er í Skjálfandafljóti í Þingeyjarsveit, rétt við bæinn Fosshól.

Önnur tengd skjöl: