Uppgjör 2017

Uppgjör losunarheimilda fyrir árið 2017

Alls gerðu fimm íslenskir flugrekendur og sjö rekstraraðilar iðnaðar upp heimildir sínar. Heildarlosun í flugi sem fellur undir kerfið var 813.745 tonn COígilda, en í iðnaði var losunin 1.831.667 tonn af COígildum. Heildarlosun innan kerfisins var því 2.645.412 tonn af CO2.

Losun frá flugi til og frá Íslandi jókst líkt og fyrri ár milli ára. Aukning losunar varð 13,2% milli áranna 2016 og 2017. Árið 2016 var losunin 718.624 tonn af CO2 en varð á síðasta ári 813.745 tonn af CO2. Þeim flugrekendum sem bar skylda til að gera upp losun sína fækkaði um einn og eru nú fimm. Losun frá flugi er þó háð takmörkunum að því leytinu til að hún er einungis losun innan EES svæðisins og tekur því ekki á heildarlosun flestra flugrekenda, þar sem t.d. Ameríkuflug er ekki innan gildissviðs kerfisins eins og er.

Losunin í iðnaði jókst lítillega á milli ára, eða um 2,8%, úr 1.780.965 tonnum af CO2 árið 2016 í 1.831.667 tonn af CO2 árið 2017. Jafnmargir rekstraraðilar í iðnaði gerðu upp fyrir árið 2017 og árið á undan, eða sjö talsins.

Á myndunum hér að neðan má sjá losun gróðurhúsalofttegunda (CO2) frá staðbundnum iðnaði og flugsamgöngum, er féll undir viðskiptakerfið og var í umsjón Íslands.


Heildarlosun flugrekenda sem falla undir Ísland með losun sem féll undir gildissvið ETS 2013-2017
 

Heildarlosun rekstraraðila sem falla undir Ísland með losun sem féll undir gildissvið ETS 2013-2017 

Samanburður á losun í flugi og iðnaði sem féll undir gildissvið ETS 2013-2017