Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Leiðbeiningar með umsókn

Hvernig er sótt um?

Sótt er um bráðabirgðaheimild með því að senda umsókn á netfangið uos@uos.is.

Hvaða upplýsingar þurfa að fylgja umsókn?

Eftirfarandi þættir þurfa að koma fram í umsókninni:

  1. Upplýsingar um rekstraraðila (nafn og kennitala)
  2. Fyrir hvaða starfsemi er sótt um bráðabirgðaheimild
  3. Umfang starfseminnar
  4. Hver er útgefandi starfsleyfis fyrir starfseminni (Umhverfis- og orkustofnun eða heilbrigðisnefnd)
  5. Rökstuðningur fyrir því að um sé að ræða undantekningartilvik og að brýn þörf sé til staðar.
  6. vaða aðgerðir eru fyrirhugaðar á gildistíma bráðabirgðaheimildarinnar.
  7. Upplýsingar um tengilið umsóknarinnar (nafn, sími og netfang).

Umsóknarferlið

Þegar fullnægjandi umsóknargögn hafa borist fer umsóknin almennt í eftirfarandi ferli:

  • Umsókn er yfirfarin af Umhverfis- og orkustofnun.
  • Aflað er umsagna frá viðeigandi aðilum, svo sem heilbrigðisnefnd.
  • Ef skilyrði eru talin uppfyllt fyrir veitingu bráðabirgðaheimildar eru útbúin áform um veitingu bráðabirgðaheimildar ásamt starfsleyfisskilyrðum fyrir starfsemina.
  • Áformin eru auglýst á heimasíðu stofnunarinnar í allt að eina viku. Í áformunum koma fram þau starfsleyfisskilyrði sem starfsemin sætir. Almenningi gefst kostur á að koma á framfæri athugasemdum á auglýsingatíma.
  • Að auglýsingatímanum liðnum tekur stofnunin ákvörðun um það hvort veita eigi bráðabirgðaheimild.

Ef upplýsingar í umsókn eru ófullnægjandi eða umsóknin uppfyllir ekki skilyrði fær umsækjandi tækifæri til koma með athugasemdir áður en endanleg ákvörðun er tekin um höfnun á veitingu bráðabirgðaheimildar.

Málsmeðferðartími

Afgreiða skal umsókn um bráðabirgðaheimild eigi síðar en fjórum vikum eftir að fullnægjandi umsókn berst.

Gjaldtaka

Innheimt er tímagjald fyrir vinnu við afgreiðslu umsókna um bráðabirgðaheimild, óháð því hvort bráðabirgðaheimild verði veitt eða umsókn hafnað, samkvæmt gildandi gjaldskrá stofnunarinnar, sjá nánar í gjaldskrá fyrir verkefni og þjónustu Umhverfis- og orkustofnunar.

Dæmi um bráðabirgðaheimildir sem hafa verið veittar

Bráðabirgðaheimildir hafa meðal annars verið veittar þegar brýn þörf hefur verið á að halda áfram starfsemi á meðan nýtt starfsleyfi er í vinnslu hjá starfsleyfisútgefanda. Einnig hafa þær verið veittar vegna brýnna almannahagsmuna, svo sem í tengslum við náttúruvá líkt og í jarðborunarmálinu á Reykjanesi  eða til að tryggja mikilvæga samfélagsþjónustu, svo sem blóðsöfnun Blóðbankans.

Þá hefur bráðabirgðaheimild líka verið veitt þegar nauðsynlegt var að tryggja starfsemi mikilvægra innviða í samfélaginu eins og rekstur Reykjavíkurflugvallar.