Stök frétt

Mynd: Veiðivötn, Veiðifélag Landmannaafréttar
Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfum Veiðifélags Landmannaafréttar að Götu og Galtalæk, Rangárþingi ytra.
Um er að ræða landeldi þar sem hámarks lífmassi á hverjum tíma má ekki fara yfir 2 tonn í Galtalæk og 50 kg að Götu.

Tillaga að starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 30. mars 2021 til og með 30. apríl 2021 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Engin athugasemd barst stofnuninni vegna tillögunnar á auglýsingatíma.

Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir starsleyfinu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl
Ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi
Starfsleyfi Veiðifélags Landmannaafréttar Galtalæk
Starfsleyfi Veiðifélags Landmannaafréttar Götu