Stök frétt

Mynd: Jeremy Bishop - Unsplash

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að endurnýjun á starfsleyfi Öggs ehf. í Hjaltadal.
Öggur ehf. hefur verið með leyfi fyrir 12 tonna bleikjueldi í Hjaltadal og er um endurnýjun á því leyfi að ræða. Leyfið var framlengt í júní 2022 sem gildir til 6. júní í ár 2023.

Að mati Umhverfisstofnunar eru helstu áhrif vegna eldisins losun næringarefna bæði á föstu formi og uppleystu í viðtakann. Áætluð losun næringarefna verður undir þeim mörkum sem almennt er miðað við varðandi losun í ferskvatn með þeirri hreinsun sem rekstaraðili hyggst notast við. Hægt er að endurskoða fyrirkomulag fráveitu frá eldinu og gera auknar kröfur bendi mælingar til að hreinsun sé ábótavant samkvæmt mælingum.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202205-372, athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 2. maí 2023.

Tengd skjöl
Umsókn um starfsleyfi
Tillaga að endurnýjun á starfsleyfi Öggs ehf.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar