Stök frétt

Mynd: Krystian Tambur - Unsplash
Umhverfisstofnun auglýsir framlengingu á starfsleyfi N-lax ehf. Auðbrekku sem gildir fyrir fiskeldi með allt að 20 tonna ársframleiðslu. Umhverfisstofnun er heimilt að framlengja starfsleyfi rekstaraðila í samræmi við 4. mgr. 6. gr. laga 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Framlengingin á starfsleyfi er heimil til eins árs en hún mun gilda til 20. mars 2024.

Athugasemdir við að leyfið sé framlengt skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202303-307. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 9.maí.
Hér er hægt að skoða starfsleyfið sem framlengja á.