Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi N-lax ehf. Laxamýri, Norðurþingi. Um er að ræða landeldi með hámarkslífmassa allt að 50 tonnum. N-lax ehf. hefur verið með leyfi á sama stað til framleiðslu á allt að 20 tonnum af laxfiskum og er því verið að auka eldið.

Framkvæmdin fór í matsskyldufyrirspurn til Skipulagsstofnunar sem tók ákvörðun um að hún væri ekki háð mati á umhverfisáhrifum 25. mars 2019.

Að mati Umhverfisstofnunar eru helstu áhrif vegna eldisins losun næringarefna bæði á föstu formi og uppleystu í viðtakann. Áætluð losun næringarefna verður undir þeim mörkum sem almennt er miðað við varðandi losun í sjó með þeirri hreinsun sem rekstraraðili hyggst notast við. Hægt er að endurskoða fyrirkomulag fráveitu frá eldinu og gera auknar kröfur í hreinsun bendi mælingar til að hreinsun sé ábótavant samkvæmt mælingum. Þá er einnig hægt að endurskoða fyrirkomulag vöktunar út frá losun og áhrifum á vatnshlotið sem rekstraraðili losar í.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun ust@ust.is merkt UST202303-292, athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 11. maí.

Tengd skjöl:
Umsókn um starfsleyfi
Tillaga að starfsleyfi N-lax ehf. Laxamýri
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu
Mat á áhrifum á vatnshlot
Vöktunaráætlun Laxamýri