Stök frétt

Fulltrúar Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja gengu fjörur í gær, aðfangadag og í dag, jóladag, í leit að olíu eða olíublautum fuglum.

Í gær sást smit á stöku stað í samræmi við athugun úr lofti. Engin ummerki sáust um frekari leka né olíublauta fugla. Í dag bar ekkert á olíu frá skipinu og ekki hafa fundist olíublautir fuglar.