Stök frétt

Úrvinnslusjóður hefur hrint af stað kynningarátaki vegna söfnunar á ónýtum rafhlöðum til úrvinnslu. Markmið átaksins er að fá fleiri til að safna og skila notuðum rafhlöðum, auka vitund almennings um mikilvægi þess að rafhlöðum sé skilað og vekja athygli á að einfalt sé að losna við þær. Þátttakendur í kynningarátakinu ásamt Úrvinnslusjóði eru Olís, Efnamóttakan, Gámaþjónustan og Hringrás. Sameiginleg táknmynd átaksins eru teiknimyndafígúrurnar Raffa og Batti sem prýða allt kynningarefni þess.

Rafhlöður eiga ekki að fara í ruslið heldur á að skila þeim til úrvinnslu. Hægt er að skila inn ónýtum rafhlöðum á bensínstöðvum og söfnunarstöðvum sveitarfélaga um land allt, auk þess sem hægt er að setja þær í endurvinnslutunnur fyrir flokkað heimilissorp. Á vef Úrvinnslusjóðs, www.urvinnslusjodur.is, er hægt að nálgast upplýsingar um staðsetningu söfnunarstöðva á landinu öllu. Þar er einnig að finna spurningar og svör um rafhlöður þar sem fróðleiksfúsir geta aflað sér nánari upplýsinga um innihald þeirra, flokkun og áhrif spilliefna á umhverfið.

Af þeim 161,5 tonnum rafhlaðna sem flutt voru inn til landsins á árinu 2005 var aðeins rúmlega 37 tonnum skilað. Þetta eru ekki nema 21% af öllum seldum rafhlöðum hér á landi. Þetta þýðir að hvorki meira né minna en rúm 124 tonn af rafhlöðum hafa farið beint í ruslið og því verið urðuð með öðru sorpi.

Rafhlöðum er fargað eða eytt á viðurkenndan hátt hjá aðilum sem hafa starfsleyfi til þess. Frá söfnunarstöðvunum eru rafhlöðurnar fluttar til Efnamóttökunnar eða Hringrásar þar sem þær eru flokkaðar. Hluti þeirra er urðaður, þ.e. þær sem ekki innihalda spilliefni. Rafhlöður sem innihalda spilliefni eru mjög skaðlegar fólki og umhverfi og eru þær sendar í háhitabrennslu til viðurkennds eyðingaraðila í Danmörku.