Stök frétt

Haldið verður námskeið í notkun varnarefna í landbúnaði og garðyrkju 23. og 24. mars næstkomandi. Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem vilja öðlast réttindi til að kaupa og nota efni í X og A hættuflokkum.

Lágmarksfjöldi þátttakenda er 15 manns.

Farið verður yfir helstu skaðvalda sem við er að eiga í ræktuninni. Hvaða úrræði eru möguleg til að verjast þeim óværum sem við er að eiga. Sagt verður almennt frá samsetningu varnarefna og verkun þeirra og hvernig megi nota þau á sem tryggastan hátt.

Kynnt verða lög og reglugerðir er varða notkun á efnum í þessum hættuflokkum. Farið í hvers konar tæki eru notuð til úðunar, dreifingar og skömmtunar á varnarefnum, ásamt útskýringum á virkni og meðferð tækjanna.