Stök frétt

Umhverfisstofnun auglýsir, í samstarfi við Vatnajökulsþjóðgarð, námskeið fyrir áhugafólk um sjálfboðastörf í náttúruvernd. Námskeiðið fer fram í Skaftafelli dagana 1. til 3. maí. Sjálfboðastörf fela í sér góðan félagsskap í náttúru Íslands þar sem fólk leggur sitt af mörkum til náttúruverndar. Ekki má heldur gera lítið úr því hversu heilsusamleg slík útivinna getur verið. Þátttaka í námskeiðinu gefur kost á þátttöku í sjálfboðastörfum í sumar á vegum Umhverfisstofnunar. Hámarksfjöldi þátttakenda er 12 manns.

Farið verður með rútu frá Reykjavík eða Höfn föstudaginn 1. maí og komið þangað aftur sunnudaginn 3.maí. Rútuferðir, matur, skálagisting og námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Leiðbeint verður um verkfæri, vandkvæði og verklag við stígagerð sem og annað sem mikilvægt er við sjálfboðastarf.

Æskilegt er að umsækjendur séu 20 ára eða eldri. Berist fleiri umsóknir en hámarksfjöldi segir til um verður dregið um laus sæti.

Umsóknarfrestur er til 26. apríl 2009. Umsóknum skal skilað á sérstökum umsóknareyðublöðum, sem hægt að nálgast hér að neðan og í móttöku Umhverfisstofnunar að Suðurlandsbraut 24, Reykjavík.

Umsóknareyðublöð skulu send á netfangið ust@ust.is eða á Umhverfisstofnun Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.

Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um.