Stök frétt

Hótel Valhöll brann til grunna föstudaginn 10. júlí 2009. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands boðaði til fundar í kjölfarið með þeim aðilum er koma að málinu hvað varðar eignir, slökkvistarf, hreinsun og mengun. Talsvert vatnsmagn var notað við slökkvistarfið sem kann að hafa skilað óæskilegum efnum út í umhverfið.

Ákveðið var að Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, er hefur eftirlit með svæðinu, myndi framkvæma jarðvegsrannsókn til að kanna hugsanlega mengun. Sýni voru tekin af svæðinu og var eitt sent strax í rannsókn þar sem meðal annars verður leitað eftir þungmálmum og PCB. Ákveðið verður um framhaldið þegar niðurstöður rannsókna liggja fyrir. Niðurstaðna er að vænta í ágúst. Umhverfisstofnun vaktar lífríkið í Þingvallavatni og mun fylgjast með framvindu mála eftir því sem þörf er á. Hreinsun á svæðinu stendur yfir.