Stök frétt

Frestur til að sækja um hreindýraveiðileyfi á miðnætti 15. febrúar. Alls bárust um 3.800 umsóknir um þau 1.272 dýr sem leyfi verða gefin út fyrir. Dregið verður úr hreindýraveiðileyfum á laugardaginn 20.febrúar kl 14:00 í húsakynnum Þekkingarnets Austurlands. Hægt verður að fylgjast með útdrættinum á veraldarvefnum og má nálgast slóðina hér á vef Umhverfisstofnunar þegar þar að kemur.

Í ár gildir ný regla sem kynnt var hér á síðunni varðandi þá umsækjendur sem ekki hafa fengið úthlutun í fimm skipti í röð eða oftar. Nú er ljóst að 33 þeirra sem sú regla nær til sóttu um leyfi þetta árið. Þar sem umsóknir þessara umsækjenda verða með í útdrætti eins og annarra hafa þeir jafnar líkur og aðrir á að vera dregnir út. Vegna þessa má vænta að það verði eitthvað færri en 33 sem verða teknir fram fyrir biðröð. Niðurstöður útdráttar verða sendar á sunnudegi eða mánudegi til umsækjenda. Á mánudag verður greint frá því hér á síðu Umhverfisstofnunar hversu margir af þeim 33 sem fimm skipta reglan gildir um fara fram fyrir í biðröð.

Þeir umsækjendur sem fá dýr þurfa að greiða staðfestingargjald fyrir 1. apríl hyggist þeir taka leyfið. Staðfestingargjald er fjórðungur af verði leyfisins og fæst ekki endurgreitt. Þeir umsækjendur sem fá leyfi úthlutað en hyggjast ekki nýta leyfið eru hvattir til að tilkynna þá ákvörðun sem fyrst til Umhverfisstofnunar.