Stök frétt

Höfundur myndar: Lúðvík Gústafsson

Umhverfisstofnun hefur metið útstreymi þrávirkra lífrænna efna á Íslandi á tímabilinu 1990 til 2008. Þessum upplýsingum hefur verið skilað til Samningsins um loftmengun sem berst langar leiðir milli landa. Umhverfisstofnun hefur gert skýrslu um helstu niðurstöður og aðferðafræði við mat á útstreymi þessara efna. Skýrslan er á ensku og kallast Emissions of Persistent Organic Pollutants in Iceland 1990 - 2008.

Heildarútstreymi díoxíns á Íslandi var 11,3 g I-TEQ árið 1990. Árið 2008 var útstreymið 3,9 g I-TEQ og hefur því minnkað um 66% á tímabilinu. Þessa minnkun má einkum rekja til þess að mjög hefur dregið úr opinni brennslu úrgangs og brennslu úrgangs í lélegum brennsluþróm á tímabilinu. Losun PAH4 var 53,5 kg árið 1990. Árið 2008 var útstreymið 90,8 kg og hefur útstreymið því aukist um 70% á tímabilinu. Þessa aukningu má einkum rekja til framleiðsluaukningar í stóriðju, en einnig að hluta til aukinnar losunar frá vegasamgöngum.