Stök frétt

Þann 24. maí sl. gaf Umhverfisstofnun út starfsleyfi fyrir móttökustöð Gámaþjónustu Norðurlands ehf. við Rangárvelli, Akureyri. Tillaga að starfsleyfinu var auglýst á tímabilinu 1. mars - 29. apríl 2011 en Umhverfisstofnun barst engin athugasemd. Samkvæmt hinu nýja starfsleyfi er Gámaþjónustu Norðurlands heimilt að taka á móti allt að 25 þúsund tonnum af úrgangi á ári til meðhöndlunar, þ.e. flokkunar, umhleðslu, forvinnslu, böggunar, pökkunar og geymslu, og gildir leyfið til næstu sextán ára.

Tengd skjöl

Starfsleyfi Gámaþjónustu Norðurlands, Akureyri