Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur ákveðið að loka tímabundið gönguleið sem liggur frá neðra bílastæði að fossbrún Gullfoss.  Að vetrarlagi geta skapast hættulegar aðstæður vegna hálku og snjóalaga. Því er stígnum lokað í öryggisskyni þar til aðstæður verða betri.

Skilti á fjórum tungumálum hafa verið sett upp til upplýsinga um að stígurinn sé lokaður vegna hættu.