Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir urðunarstað  Sorpsamlags Strandasýslu ehf. í landi Skeljavíkur.  Samkvæmt tillögunni verður heimilt að taka á móti allt að 500 tonnum af almennum úrgangi til urðunar, úrvinnslu og geymslu. Samkvæmt tillögunni verður gildistími starfsleyfis til næstu sextán ára. 

Tillagan, ásamt starfsleyfisumsókn og fylgigögnum, mun liggja frammi til kynningar í afgreiðslu á skrifstofu Strandabyggðar, Höfðagötu 3, Hólmavík, til 4. júlí 2012. 

Starfsleyfistillögu og önnur gögn má einnig nálgast á heimasíðu Umhverfisstofnunar. 

Öllum er frjálst að gera athugasemdir við starfsleyfistillöguna en þær skulu vera skriflegar, undirritaðar með nafni og heimilisfangi og sendar Umhverfisstofnun. 

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 4. júlí 2012.

 

 Tengt efni