Stök frétt

Höfundur myndar: Kristinn Már Ársælsson

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir urðunarstað Sveitarfélagsins Hornafjarðar á Mel í landi Fjarðar. Samkvæmt tillögunni verður heimilt að taka á móti allt að 3000 tonnum af almennum neyslu- og rekstrarúrgangi á ári til urðunar. Samkvæmt tillögunni verður gildistími starfsleyfis til næstu sextán ára. Tillagan, ásamt starfsleyfisumsókn og fylgigögnum, mun liggja frammi til kynningar í Ráðhúsi Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, 780 Höfn í Hornafirði, á tímabilinu 15. ágúst- 10. október 2012. Starfsleyfistillögu og önnur gögn má einnig nálgast á heimasíðu Umhverfisstofnunar. Öllum er frjálst að gera athugasemdir við starfsleyfistillöguna en þær skulu vera skriflegar, undirritaðar með nafni og heimilisfangi og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 10. október 2012.