Stök frétt

Höfundur myndar: Kristinn Már Ársælsson

Umhverfisstofnun hefur gefið út starfsleyfi fyrir urðunarstað Sveitarfélagsins Hornafjarðar á Mel í landi Fjarðar, en þar er veitt heimild til að taka á móti allt að 3000 tonnum af almennum neyslu- og rekstrarúrgangi á ári til urðunar. Umhverfisstofnun auglýsti tillöguna á tímabilinu 15. ágúst til 10. október 2012 og hún lá frammi í Ráðhúsi Sveitarfélagsins Hornafjarðar á sama tíma. Engin athugasemd barst stofnuninni á auglýsingartíma.

Nýja starfsleyfið öðlast þegar gildi og gildir til 6. nóvember 2028.