Stök frétt

Ljósmyndakeppni 2012

Höfundur myndar: Karl Fjölnir Finnbogason

Umhverfisstofnun hefur, líkt og undanfarin ár, ákveðið að loka tímabundið gönguleið sem liggur frá neðra bílastæði að fossbrún Gullfoss. Að vetrarlagi geta skapast hættulegar aðstæður vegna hálku og snjóalaga. Því er stígnum lokað í öryggisskyni þar til aðstæður verða betri. Skilti á fjórum tungumálum verða sett upp til upplýsinga um að stígurinn er lokaður vegna hættu. Umhverfisstofnun beinir þeim tilmælum til ferðamanna og ferðaþjónustuaðila að virða lokunina og minnka þannig hættu á slysum.

Lokunin gildir frá og með 16.nóvember.