Prentmet hefur frá stofnun lagt sig fram við að minnka neikvæð umhverfisáhrif og unnið af kappi að vottun. Fyrirtækið starfrækir þrjár prentsmiðjur og eru þær nú allar Svansvottaðar. Prentmet Vesturlands er níunda íslenska prentsmiðjan sem hlýtur Svansvottun og bætist því í ört stækkandi hóp Svansmerktra fyrirtækja sem eru nú 23 talsins.
Kristín Linda Árnadóttir afhenti Þórði Elíassyni og forsvarsmönnum Prentmets Vesturlands Svansleyfið í húsnæði fyrirtækisins seinasta föstudag.
Prentmet var stofnað í apríl árið 1992 af hjónunum Guðmundi Ragnari Guðmundssyni og Ingibjörgu Steinunni Ingjaldsdóttur. Í byrjun voru aðeins tveir starfsmenn hjá Prentmeti en fyrirtækið fór þó fljótlega að færa út kvíarnar og starfsfólki fjölgaði ört. Hjá Prentmeti starfa nú tæplega 100 manns á þremur stöðum; í Reykjavík, á Selfossi og Akranesi.
Í desemberlok árið 2000 keypti Prentmet Prentverk Akraness og nafninu síðar breytt í Prentmet Vesturlands. Prentsmiðjustjóri er Þórður Elíasson og í prentsmiðjunni starfa 5 starfsmenn. Boðið er upp á alla almenna prentþjónustu þar sem hraði, gæði og persónuleg þjónusta eru einkunnarorðin. Prentsmiðjan gefur út Póstinn sem er öflugt auglýsingablað sem er dreift vikulega um allt Vesturlandskjördæmi.
Kröfur Svansins fyrir prentsmiðjur eru mjög strangar, sérstaklega hvað varðar efnanotkun, sem er þýðingarmesti umhverfisþátturinn í rekstri prentsmiðja en auk þess er: