14. janúar.2013 | 10:30
Efnaeimingu útgefið starfsleyfi
Þann 8. janúar sl. gaf Umhverfisstofnun út
starfsleyfi fyrir
starfsemi Efnaeimingar ehf., Seljavogi 14, Reykjanesbæ.
Tillaga að starfsleyfinu var auglýst á tímabilinu 1. nóvember - 27. desember
2012 en Umhverfisstofnun bárust engar athugasemdir við hana. Samkvæmt hinu
nýja starfsleyfi er Efnaeimingu heimilt að endurvinna allt að 80 tonn á ári af
tilteknum spilliefnum í vökvafasa. Starfsleyfið tekur einnig til geymslu
hráefnis og afurða og flutnings spilliefna til og frá starfstöð fyrirtækisins.
Gildir starfsleyfið til næstu 16 ára. Eftirlit með starfseminni er í höndum
Umhverfisstofnunar.