Stök frétt

Nú um mánaðamótin birtist krafa vegna lokagreiðslu hreindýraveiðileyfa í heimabönkum leyfishafa. Einnig verða sendir út greiðsluseðlar í næstu viku. Samkvæmt reglugerð er síðasti mögulegi greiðsludagur 30. júní en þar sem þann dag ber upp á sunnudag verður hægt að greiða mánudaginn 1. júlí. Bent er á að ekki er gott að treysta á greiðslur á síðasta degi. Ef krafa birtist ekki í heimabanka eða greiðsluseðill berst ekki er best að hafa samband við Umhverfisstofnun í tíma, með því að senda tölvupóst á joigutt@ust.is.