Stök frétt

Þann 14. nóvember kl. 9:00-17:30 verður haldinn Norðurslóðadagur í Sjávarútvegshúsinu, Skúlagötu 4 en yfirskrift dagsins er: Hvernig eflum við þátttöku íslensks vísindasamfélags í alþjóðlegri samvinnu og stefnumótun um norðurslóðir?

Á Norðurslóðadegi 2013 verður rætt um (1) hvernig íslenskt vísindasamfélag er í stakk búið til að mæta þeim áskorunum sem hraðfara breytingar á norðurslóðum hafa í för með sér og (2) hvernig vísindasamfélagið er undirbúið til að taka þátt í vaxandi alþjóðlegu samstarfi á þessu sviði. Fjallað verður á þverfaglegan hátt um framlag og verkefni íslenskra aðila sem koma að alþjóðlegri samvinnu í vöktun, rannsóknum og menntun á norðurslóðum. Kynnt verða viðfangsefni sem tengjast háskólamenntun, mannauði og stoðkerfi rannsókna, þ.m.t. umgjörð stofnana til samvinnu. Jafnframt verður fjallað um valin dæmi um samstarf fyrirtækja, háskóla og opinberra stofnana.

Samhliða fyrirlestrum og pallborðsumræðu kynna stofnanir og félög er tengjast viðfangs- og málefnum norðurslóða starfsemi sína og rannsóknir með veggspjöldum í anddyri Sjávarútvegshússins og sýndar verða tvær stuttmyndir. Dagskráin hefst kl. 09:00 með ávarpi ráðuneytisstjóra umhverfis- og auðlindaráðuneytis og lýkur með sérstöku öndvegiserindi um norðurslóðarannsóknir sem hefst kl. 16:00.

Samhliða fyrirlestrum og pallborðsumræðu kynna stofnanir og félög er tengjast viðfangs- og málefnum norðurslóða starfsemi sína og rannsóknir með veggspjöldum og öðru kynningarefni í anddyri Sjávarútvegshússins. Dagskráin hefst kl. 09:00 með ávarpi ráðuneytisstjóra umhverfis- og auðlindaráðuneytis og lýkur með sérstöku öndvegiserindi um norðurslóðarannsóknir.

Skipuleggjendur Norðurslóðadagsins eru Samvinnunefnd umhverfisráðuneytisins um málefni norðurslóða; framkvæmd er í höndum Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar, Rannís, Hafrannsóknastofnunar og Norðurslóðanets Íslands.

Nánari upplýsingar og dagskrá má finna á vef Norðurslóðanets Íslands.