Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur áminnt Ísfélag Vestmannaeyja – Þórshöfn og krafist úrbóta vegna fráviks sem kom í ljós við eftirlit. Fyrirtækinu var veittur frestur til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og tækifæri til að bregðast við athugasemdunum.

Frávikið sem áminnt var fyrir

  1. Úrgangsolía var brennd hjá fyrirtækinu án þess að fyrir því væru heimildir í starfsleyfi rekstraraðila. 

Umhverfisstofnun veitti rekstraraðila, með bréfi dagsettu þann 16. desember 2013, frest til 31. desember til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og skila inn gögnum. Þann 13. janúar hafði stofnuninni hvorki borist úrbótaáætlun né staðfesting á að hætt hefði verið að brenna úrgangsolíu.

Sinni Ísfélag Vestmannayeja - Þórshöfn ekki tilmælum Umhverfisstofnunar innan tilskilins frests er stofnuninni heimilt að ákveða rekstraraðila dagsektir allt að upphæð 500.000 kr. á dag þar til úr er bætt. Einnig getur stofnunin gripið til frekari aðgerða. 

Tengt efni