Stök frétt

Hjá Umhverfisstofnun er laust til umsóknar starf lögfræðings. Í boði er krefjandi starf í frjóu umhverfi sérfræðinga þar sem gildin fagmennska, samvinna, framsýni og virðing eru höfð að leiðarljósi. 

Helstu verkefni lögfræðingsins verða lögfræðileg álit, leiðbeiningar og undirbúningur stjórnvaldsákvarðana á verkefnasviði stofnunar er varða efnamál og tengjast framkvæmd og eftirfylgni nýrra efnalaga nr. 61/2013. Einnig er gert ráð fyrir greiningum á löggjöf Evrópusambandsins um umhverfismál, umsögnum um stjórnsýslukærur, þingmál o.fl. 

Gerð er krafa um kandídatspróf eða grunnpróf auk meistaraprófs í lögfræði ásamt góðri færni í íslensku, bæði ritaðri og talaðri sem og jákvæðni og lipurð i mannlegum samskiptum. Reynsla af verkefnastjórnun er kostur. Að öðru leyti verða eftirfarandi kröfur um þekkingu, reynslu og hæfni hafðar til viðmiðunar við val á starfsmanni:

  • Þekking á stjórnsýslurétti. 
  • Þekking á umhverfisrétti, þ.m.t. þekking á EES-reglum á sviði umhverfismála. 
  • Þekking og/eða reynsla af opinberri stjórnsýslu. 
  • Kunnátta í ensku og Norðurlandamáli. 

Næsti yfirmaður lögfræðingsins er Gunnlaug Einarsdóttir sviðsstjóri, sem veitir nánari upplýsingar um starfið ásamt Sigrúnu Valgarðsdóttur starfsmannastjóra í síma 591 2000. 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. 

Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst. Föst starfsaðstaða starfsmannsins getur verið í Reykjavík, Hellissandi, Patreksfirði, Ísafirði, Akureyri, Mývatni, Egilsstöðum, Hellu eða Vestmannaeyjum, allt eftir búsetu umsækjanda. Gert er ráð fyrir að gagnkvæmur reynslutími sé sex mánuðir við ráðningu. 

Umsóknarfrestur er t.o.m. 23. júní 2014. Umsóknir skulu sendar til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík eða á netfangið ust@ust.is.