Stök frétt

Rjúpa
Árlegri vortalningu Náttúrufræðistofnunar Íslands á rjúpu er lokið. Talningar gengu ágætlega og voru rjúpur taldar á 41 svæði í öllum landshlutum. Alls sáust 1459 karrar sem er um 2% af áætluðum heildarfjölda karra í landinu samkvæmt stofnstærðarmati. Talningarnar voru unnar í samvinnu við náttúrustofur landsins, þjóðgarðinn á Þingvöllum, Vatnajökulsþjóðgarð, Fuglavernd, Skotvís, Fuglarannsóknastöðina á Höfn og áhugamenn. Um 60 manns tóku þátt í talningunum að þessu sinni.

Rjúpnatalningar Náttúrufræðistofnunar Íslands vorið 2014 sýna fjölgun víða um land. Samandregið fyrir öll talningasvæði var meðalfjölgun rjúpna 41% á milli áranna 2013 og 2014. Þessar niðurstöður eru í samræmi við niðurstöðu rjúpnatalninga vorið 2013 en þær sýndu að fækkunarskeið sem hófst 2009-2010 lauk eftir aðeins tvö til þrjú ár.  Þetta er óvanalegt þar sem náttúruleg lengd stofnsveiflu íslensku rjúpunnar er um 11 ár og fyrri fækkunarskeið hafa varað í 5 til 8 ár en samkvæmt því átti næsta lágmark að vera á árunum 2015 til 2018.

Þrátt fyrir fjölgun í stofninum á síðustu árum er hann í sögulegu samhengi undir meðallagi. Mat á veiðiþoli rjúpnastofnsins og nánari greining á ástæðum fjölgunar munu liggja fyrir í ágúst í kjölfar mælinga á varpárangri rjúpna, afföllum 2013 til 2014 og veiði 2013.