Stök frétt

Umhverfisstofnun gefur árlega út skýrslu um ástand friðlýstra svæða á Íslandi. Á tveggja ára fresti er svo gefinn út svokallaður „rauður listi“ sem byggður er á ástandsskýrslunni. Eitt af markmiðum rauða listans er að forgangsraða kröftum og fjármunum til verndunar. Svæðin á listanum flokkast annars vegar á rauðan lista, en þar eru þau svæði sem eru undir miklu álagi sem bregðast þarf við strax. Hins vegar eru á appelsínugulum lista þau svæði sem eru undir töluverðu álagi og fylgjast þarf vel með og bregðast við eftir atvikum. 

Þróun listans frá 2010 hefur verið þannig að svæðum á rauða listanum hefur fækkað en svæðum á appelsínugula listanum hefur fjölgað. Svæði á rauðum lista voru 10 árið 2010 en eru fimm í ár. Er það fyrst og fremst vegna þess að verndaraðgerðir hafa borið árangur og svæði færst niður á appelsínugula listann. 

Sumarið 2014 er gert ráð fyrir miklum framkvæmdum og verndarráðstöfunum. Vonast er til að þær aðgerðir muni leiða til þess að Helgustaðanáma fari af rauða listanum. Sömuleiðis standa vonir til að sex svæði falli út af appelsínugula listanum eftir framkvæmdir sumarið 2014: Dynjandi, Dyrhólaey, Gullfoss, Teigarhorn, Skútustaðagígar og Surtarbrandsgil

Helstu breytingar frá því að listinn var gefinn út síðast eru að eitt svæði færist af rauðum lista yfir á appelsínugulan og er það Laugarás. Þar hafa aðgerðir Umhverfisstofnunar og Reykjavíkurborgar hvað varðar stýringu, upprætingu framandi tegunda og fræðslu bætt stöðu mála umtalsvert. Eitt svæði kemur aftur inn á appelsínugula listann og er það Dynjandi. Eitt svæði sem ekki hefur áður verið á lista kemur inn á appelsínugula listann, Ströndin við Stapa og Hellna. Hveravellir sem voru á appelsínugulum lista í fyrra falla út en þar var ráðist í miklar framkvæmdir til að styrkja innviði. Önnur svæði eru óbreytt á milli ára og eru nú fimm svæði á rauðum lista og sextán á appelsínugulum lista. 

Friðlýst svæði á Íslandi eru 113 talsins í maí 2014 en umfang þeirra, eðli og ástand er eins misjafnt og svæðin eru mörg. 

Margir þættir geta haft neikvæð áhrif á verndargildi friðlýstra svæða. Þó má segja að áhrif mannlegra umsvifa séu hvað mest, en friðlýst svæði eru oft vinsælir áfangastaðir ferðamanna. Árið 1953 komu um 6000 erlendir gestir til landsins. Árið 1983 voru þeir tæplega 78.000 og 2003 komu um 320.000, eða álíka margir og íbúar á landinu. Í fyrra komu svo um 807.000 manns til Íslands. Talið er að fjöldi ferðamanna fari yfir milljón á árinu 2014 eða 2015. 

Umhverfisstofnun hefur fjölgað heilsárslandvörðum nokkuð á undanförnum árum. Nú eru svæðalandverðir okkar á Látrabjargi, Ísafirði, Mývatni, Hellu, Vestmannaeyjum og í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Samhliða stóraukinni fjölgun ferðamanna undanfarin ár er ljóst að auka þarf umtalsvert landvörslu, fræðslu, framkvæmdir og verndarráðstafanir almennt á friðlýstum svæðum. Stofnunin telur mikilvægt að gerðar séu framkvæmdaáætlanir til langs tíma sem, t.a.m. taki mið af faglegri þolmarkagreiningu. Unið er að mikilvægu skrefi í þá átt á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytis með gerð frumvarps að landsáætlun um uppbyggingu innviða og verndun náttúru á ferðamannastöðum. 

Svæði á rauðum og appelsínugulum lista 2010-2014 

Rauðlituð svæði eru í verulegri hættu að tapa verndargildi sínu eða hafa tapað því að hluta til.  

Appelsínugul svæði eru í hættu á að tapa verndargildi sínu og aðgerða er þörf til að snúa þeirri þróun við. 

Greiningin byggir á upplýsingum frá árinu 2013.

 

2010

                              

2012

                             

 2014

         
Rauð svæði   Rauð svæði
Rauð svæði
Dyrhólaey   Friðland að Fjallabaki
Friðland að Fjallabaki
Friðland að Fjallabaki   Geysir
Geysir
Geysir   Helgustaðanáma
Helgustaðanáma
Grábrókargígar   Laugarás
Reykjanesfólkvangur
Gullfoss   Reykjanesfólkvangur
Verndarsvæði Mývatns og Laxár 
Helgustaðanáma   Verndarsvæði Mývatns og Laxár

Hveravellir  

Appelsínugul svæði
Reykjanesfólkvangur   Appelsínugul svæði

Dynjandi
Surtarbrandsgil   Dyrhólaey

Dyrhólaey
Teigarhorn   Eldborg í Bláfjöllum

Eldborg í Bláfjöllum

  Fossvogsbakkar

Fossvogsbakkar
Appelsínugul svæði
  Geitland

Geitland
Dynjandi
  Grábrókargígar

Grábrókargígar
Eldborg í Bláfjöllum
  Gullfoss

Gullfoss
Fossvogsbakkar
  Háubakkar
  Háubakkar
Geitland
  Hveravellir
  Kringilsárrani
Hraunfossar
  Kringilsárrani
  Laugarás
Laugarás
  Rauðhólar
  Rauðhólar
Kringilsárrani
  Skógafoss
  Skógafoss
 Verndarsvæði Mývatns og Laxár
  Skútustaðagígar
  Skútustaðagígar
    Surtarbrandsgil
  Ströndin við Stapa og Hellna
    Teigarhorn   Surtarbrandsgil
         Teigarhorn

Listi yfir svæði sem hafa færst niður milli flokka eða af lista frá 2010: 

Tengt efni