Stök frétt

Umhverfisstofnun leitar að starfsmanni með áhuga á að efla grænt samfélag, m.a. með umhverfisvottun, hvernig fjölga megi Svansvottuðum fyrirtækjum á Íslandi og bættri meðhöndlun úrgangs. Í boði er krefjandi starf í frjóu umhverfi sérfræðinga, þar sem áhersla er lögð á opin samskipti, þverfaglega vinnu, erlent samstarf og möguleika á að hafa áhrif á þróun starfs. 

Helstu verkefni sérfræðingsins tengjast rekstri á umhverfismerkinu Svaninum. Í því felst m.a. ýmis konar kynning á Svaninum, meðferð umsókna, samskipti við leyfishafa og framkvæmd eftirlits. Jafnframt mun starfsmaðurinn vinna að verkefnum er snúa að meðhöndlun úrgangs, samþættingu hollustuhátta og taka þátt í norrænu samstarfi. 

Gerð er krafa um meistarapróf í umhverfisfræði eða annarri sambærilegri menntun. Þá krefst starfið að sá sem því sinni búi yfir jákvæðni og lipurð í samskiptum. Kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli er skilyrði. 

Næsti yfirmaður sérfræðingsins er Gunnlaug Einarsdóttir sviðsstjóri, sem veitir nánari upplýsingar um starfið ásamt Sigrúnu Valgarðsdóttur starfsmannastjóra í síma 591 2000. 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um starfið. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. 

Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Föst starfsaðstaða starfsmannsins getur verið í Reykjavík, Hellissandi, Patreksfirði, Ísafirði, Akureyri, Mývatni, Egilsstöðum, Hellu eða Vestmannaeyjum, allt eftir búsetu umsækjanda. Gert er ráð fyrir að gagnkvæmur reynslutími sé sex mánuðir við ráðningu. 

Umsóknir skulu sendar til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík eða á netfangið ust@ust.is. Umsóknarfrestur um starfið er til og með 25. ágúst 2014. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Njótum umhverfisins og stöndum vörð um það saman.