Stök frétt

Almannavarnir hafa lokað leiðum á hálendinu á Norðausturlandi, norðan Dyngjufjalla af öryggisástæðum vegna jarðhræringa í Bárðarbungu. Einnig hefur nokkrum leiðum upp úr Bárðardal og við Grænavatn verið lokað. 

Umhverfisstofnun vill benda veiðimönnum á að kynna sér lokanir þessar hyggist þeir halda til veiða á Norðausturlandi. Kort af lokaða svæðinu má finna á vef Vegerðarinnar.