Stök frétt

Höfundur myndar: Gísli Jónsson

Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn Síldarvinnslunnar hf. að endurnýjun starfsleyfis fyrir fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins á Neskaupstað. Í tillögunni er lagt til að rekstraraðila sé heimilt að framleiða fiskimjöl og lýsi úr allt að 1400 tonnum af hráefni á sólarhring. 

Tillagan mun liggja frammi ásamt fylgigögnum á skrifstofu Fjarðarbyggðar, Hafnargötu 2, Reyðarfirði, á tímabilinu 16. desember 2014 til 17. febrúar 2015. 

Ekki er áformað að boða til almenns kynningarfundar (borgarafundar) um tillöguna á auglýsingatíma nema eftir því verði sérstaklega óskað. 

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 17. febrúar 2015.

Tengd gögn