Stök frétt

Höfundur myndar: Hákon Ásgeirsson

Umhverfisstofnun auglýsir námskeið í landvörslu. Þátttaka í námskeiðinu veitir landvarðaréttindi. Námskeiðsgjald er kr. 155.000. Námskeiðið hefst 12. febrúar og lýkur 8. mars. Kennt er um helgar og á kvöldin á virkum dögum. Hluti námskeiðsins verður kenndur í fjarkennslu. Námskeiðið er háð því að næg þátttaka fáist. 

Umsóknum skal skilað rafrænt eða bréflega til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24 eða í tölvupósti á netfangið ust@ust.is fyrir 30. janúar. Í umsókn komi fram nafn, kennitala, heimilisfang, stutt ferilskrá, sími og netfang. Skilyrði er að umsækjendur séu fæddir 1995 eða fyrr. 

Nánari upplýsingar veitir Jón Björnsson hjá Umhverfisstofnun, jonb@ust.is.  

Námskeiðið spannar tæpar 100 klst og megin umfjöllunarefni er: 

  • Landverðir, helstu störf 
  • Náttúruvernd og stjórnsýsla náttúruverndarmála 
  • Verðmæti friðlýstra svæða, náttúra, menning og saga 
  • Gestir friðlýstra svæða, þjónusta, samskipti og hagsmunaaðilar 
  • Náttúrutúlkun, fræðsla á friðlýstum svæðum 
  • Vinnustaður landvarða 
  • Öryggisfræðsla 
  • Verndaráætalnir, mat á gildi verndarsvæða