Stök frétt

Spenna liggur í loftinu meðal hreindýraveiðimanna. Dregið verður úr umsóknum um hreindýraveiðileyfi í beinni útsendingu laugardaginn 21. febrúar klukkan 14.00. Útdrættinum verður útvarpað hér á vefsíðu Umhverfisstofnunar en hann fer fram í Menntaskólanum á Egilsstöðum í tengslum við aðalfund Félags leiðsögumanna með hreindýraveiðum og veiðimönnum er velkomið að fylgjast með á staðnum. 

Breytilegt er eftir umsóknum hvaða líkur menn hafa á að fá úthlutað veiðileyfi en alls bárust 3673 umsóknir, þar af 3636 gildar. Alls eru 98 veiðimenn á svonefndum fimm skipta lista. Hafi veiðimaður ekki fengið úthlutað leyfi fimm ár í röð fer hann í forgang á biðlista fái hann ekki úthlutað þegar dregið er í sjötta skipti. Kvótinn í ár er samtals 1412 dýr, 630 tarfar og 782 kýr. 

Fyrirkomulag útdráttarins er einfalt. Allir sem sækja um fá úthlutað handahófskenndu númeri í útdrættinum sem getur verið á bilinu 1 til 100.000. Þeir sem fá lægstu númerin ganga fyrir í útdrættinum á hverju veiðisvæði fyrir sig. Ef kvótinn hljóðar upp á 100 dýr á svæðinu eru það einfaldlega þeir sem eru með 100 lægstu númerin sem fá veiðileyfi. Röð á biðlista ræðst af sama fyrirkomulagi. 

Vakin er sérstök athygli á að sú breyting er gerð í ár að greiða þarf veiðileyfið að fullu ekki síðar en 15. apríl. Tilgangurinn er að hægt sé að byrja fyrr að úthluta veiðileyfum af biðlista. 

Allir sem fá úthlutað hreindýraveiðileyfi þurfa einnig að standast skotpróf fyrir 1. júlí en heimilt er að reyna þrisvar sinnum við skotprófið. Standist menn ekki skotprófið er veiðileyfinu úthlutað til næsta manns á biðlista. 

Útsending frá útdrættinum hefst laugardaginn 21. febrúar klukkan 14.00 og hægt verður að fylgjast með hér að neðan.