Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur nú hafið vinnu við gerð verndar- og stjórnunaráætlunar fyrir friðlandið í Flatey í Breiðafirði. Skipuð hefur verið samstarfsnefnd við gerð áætlunarinnar og í henni sitja Hákon Ásgeirsson sérfræðingur Umhverfisstofnunar, Áslaug Berta Guttormsdóttir Reykhólahrepp, Kristín Ingimarsdóttir Framfarafélag Flateyjar, Hafsteinn Guðmundsson og Svanhildur Jónsdóttir ábúendur í Flatey. Verndar- og stjórnunaráætluninni er ætlað að fjalla um markmið verndunar svæðisins og hvernig standa skuli að viðhaldi verndargildi þess.

Umhverfisstofnun hefur gefið út leiðbeiningar varðandi gerð verndar- og stjórnunaráætlunar, Stjórnun friðlýstra náttúruminja í umsjón Umhverfisstofnunar, sem hafðar verða til hliðsjónar við gerð áætlunarinnar. Lögð er áhersla á samráð og samstarf við hagsmunaaðila og er fólk hvatt til að kynna sér verkefnið og senda ábendingar og athugasemdir.

Ferlið verður opið og gagnsætt og verður helstu gögn varðandi áætlunina aðgengilegar á heimasíðu Umhverfisstofnunar.