Stök frétt

Náttúruvættið Dynjandi í Arnarfirði  er einn fjölsóttasti viðkomustaður ferðamanna á Vestfjörðum. Ferðamönnum þar hefur fjölgað mun hraðar en gert var ráð fyrir og við því þarf að bregðast. Umhverfisstofnun fékk styrk til  til innviðauppbyggingu á svæðinu og framkvæmdir við Dynjanda munu hefjast að fullu vorið 2016. Hönnunarvinnu er að mestu lokið á þeim framkvæmdum sem áætlað er að fara í, en þær eru; stækkun og malbikun bílastæðis og göngustígs fyrir hreyfihamlaða, viðhald á núverandi göngustígum og smíðar og uppsetning á pöllum úr járni við helstu útsýnisstaði.

Í sumar voru sett upp fjögur ný upplýsinga- og fræðsluskilti ásamt því að malarefni í göngustíga var flutt með þyrlu á þá staði sem ekki er hægt að koma efni að með öðrum leiðum. Áætlað er að þessum framkvæmdum verði lokið í október 2016. En fleiri þættir kalla á endurbætur eins og salernisaðstaða. Í dag eru þrjú salerni við Dynjanda, en þau anna ekki lengur þeim fjölda gesta sem heimsækja svæðið yfir sumartímann. Því verður nú sótt um styrk til byggingar nýrrar salernisaðstöðu og salernum fjölgað. Með þessu átaki í innviðauppbyggingu er meginmarkmiðið að tryggja verndun svæðisins með því að draga úr álagi á lífríki svæðisins og þá sérstaklega gróður. En einnig að auka öryggi, aðgengi og upplifun ferðamanna af náttúruvættinu Dynjanda.