Stök frétt

Umhverfisstofnun mun til bráðabirgða loka aðgengi að Kirkjufjöru og brýnir stofnunin fyrir fólki að fara alls ekki niður í fjöruna enda líkur á að meira muni hrynja úr klettum ofan Kirkjufjöru.

Veðurstofa Íslands mun um miðja vikuna gera nákvæmari athugun á stöðugleika bjargbrúnarinnar og upplýsa í kjölfarið hvort að ástæða sé til að varast umferð um fjöruna eða bjargbrúnir Dyrhólaeyjar.

Umhverfisstofnun hefur óskað eftir fundi með Almannavarnanefnd Mýrdalshrepps og lögreglu þar sem rætt verður um viðbrögð við auknu hruni úr klettum Dyrhólaeyjar.