Stök frétt

Nú hafa þeir rekstraraðilar sem voru án frávika í eftirliti síðasta árs, fengið merki stofnunarinnar um frávikalaust fyrirtæki 2015 inn á fyrirtækjasíðuna sína og óskum við þeim til hamingju með góðan árangur og flott viðhorf í umhverfismálum. Alls voru 75 fyrirtæki sem fengu merkið fyrir árið 2015 en af þeim voru 19 fyrirtæki sem eru með eftirlit annað hvert ár og fengu því ekki eftirlit frá stofnuninni en voru frávikalaus árið 2014. Árið 2015 fengu alls 97 fyrirtækieftirlit og af þeim voru 55 án frávika. Hlutfall frávikalausra fyrirtækja  var því 57% og er það aðeins lægra heldur en árið áður en það ár stóðu rekstraraðilar sig einna best og var hlutfall frávikalausra fyrirtækja  67% árið 2014.

Eftirlit ársins 2016 fer vel af stað og eru rekstraraðilar hvattir til að taka vel á móti eftirlitsmönnum og setja umhverfismál í forgang því það er sannarlega hagur allra þegar til lengri tíma er litið.