Stök frétt

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta þessa árs að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Heimilt verður að veiða allt að 1315 dýr á árinu, 922 kýr og 393 tarfa.

Veiðin skiptist milli níu veiðisvæða og eru mörk þeirra og fjöldi dýra á hverju svæði tilgreind nánar í auglýsingu sem birtist í Lögbirtingablaðinu. Heimildirnar eru veittar með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum sem kalli á endurskoðun veiðiheimilda.

Veiðitími tarfa er frá 1. ágúst til og með 15. september, en þó getur Umhverfisstofnun heimilað veiðar á törfum frá og með 15. júlí. Veiðitími kúa er frá 1. ágúst til 20. september.

Veturgamlir tarfar eru alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tveggja vetra og eldri tarfa. Óheimilt er að veiða kálfa.

Umhverfisstofnun auglýsir og sér um sölu allra veiðiheimildanna.

Verð fyrir veiðileyfin eru 140.000 kr. fyrir tarf (hækkun um 5000 kr.) og 80.000 kr. fyrir kú. Uthlutuð veiðileyfi skulu greiðast að fullu eigi síðar en 15.apríl.

Umsóknum skal skilað rafrænt á þjónustuvef Umhverfisstofnunar, Mínar síður og er umsóknarfrestur um hreindýraveiðileyfi til og með 15. febrúar. Hægt er að sækja um til miðnættis þann dag.

Hér að neðan má sjá hvernig veiðikvóti skiptist milli svæða og kynja. Á svæði 8 verður heimilt að veiða 40 kýr í nóvember og þarf að velja um það í umsóknarferlinu.

 Kvóti 2017

Veiðisvæði

Kýr

Tarfar

Samtals

1

195

65

260

2

271

64

335

3

50

30

80

4

21

20

41

5

47

49

96

6

83

73

156

7

155

50

205

8

90(40)*

30

120

9

10

12

22

Samtals

922

393

1315

 

* þar af kýr sem veiða má í nóvember