Stök frétt

fiskeldi

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Fjarðalax ehf. til framleiðslu á allt að 10.700 tonnum á ári af laxi í Patreskfirði og Tálknafirði.

Fjarðalax ehf er með leyfi til eldis á laxi í sjókvíum að 3.000 tonnum á ári í Patreksfirði og Tálknafirði.

Tillagan, ásamt fylgiskjölum, mun liggja frammi til kynningar í afgreiðslu afgreiðslu stjórnsýsluhúss Vesturbyggðar, Aðalstræti 63, Patreksfirði, á tímabilinu 13.febrúar – 11.apríl 2017.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 11.apríl 2017. Á vef Umhverfisstofnunar má finna auglýsta tillögu Umhverfisstofnunar, umsóknargögnin, tilkynningu til Skipulagsstofnunar og matsskylduákvörðun hennar.

Tengd skjöl