Stök frétt

Umhverfisstofnun boðar til opins kynningarfundar um niðurstöður eftirlits og umhverfisvöktunar á Grundartanga miðvikudaginn 19. apríl að hótel Glym, Hvalfjarðarsveit klukkan 15:30.

Í starfsleyfum tiltekinna stærri fyrirtækja er kveðið á um að boða skuli til opins kynningarfundar um umhverfisvöktun og losun af völdum starfseminnar.

Dagskrá fundarins:

  • Hallfreður Vilhjálmsson fundarstjóri setur fundinn.
  • G. Stella Árnadóttir frá Umhverfisstofnun kynnir áherslur og fyrirkomulag í eftirliti stofnunarinnar
  • Einar Halldórsson frá Umhverfisstofnun kynnir niðurstöður eftirlits og mælinga á losun iðjuveranna.
  • Eva Yngvadóttir frá Eflu verkfræðistofu fjallar um niðurstöður umhverfisvöktunarinnar.
  • Steinunn Dögg Steinsen frá Norðurál flytur erindi.
  • Sigurjón Svavarsson frá Elkem Ísland flytur erindi.
  • Umræður að loknum framsögum.

Skjöl fyrir fund má sjá hér