Stök frétt

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið vill koma á framfæri að heimagisting er gisting á lögheimili einstaklings eða einni annarri fasteign í hans eigu sem hann hefur persónuleg not af, þ.e. gisting á heimili þess sem býður upp á heimagistingu.

Sá sem hyggst bjóða upp á heimagistingu skal skrá starfsemi sína hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu eða á miðlægu vefsvæði sé það fyrir hendi.  Frá og með 1. júlí nk. þarf heimagisting ekki að hafa starfsleyfi frá heilbrigðisnefnd.
Um heimagistingu gilda ákvæði reglugerðar nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og reglugerð nr. 941/2002 um hollustuhætti, með síðari breytingum.

Reglugerð nr. 1277/2016.
Reglugerð nr. 941/2002.