Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Arctic Sea Farm hf. til framleiðslu á allt að 4.000 tonnum á ári af regnbogasilungi eða laxi í Dýrafirði í sveitarfélaginu Ísafirði. Arctic Sea Farm hf. er þegar með 2.000 tonna leyfi í Dýrafirði og er því að sækja um stækkun.

Tillagan ásamt fylgiskjölum mun vera aðgengileg hjá sveitarstjórn Ísafjarðarbæjar á tímabilinu 5. júlí – 31. ágúst 2017. Meðfylgjandi er auglýst tillaga Umhverfisstofnunar, umsóknargögnin, tilkynning til Skipulagsstofnunar og matsskýrsla. Þá fylgir einnig sérstök greinargerð um málið. Starfsleyfistillagan hefur áður verið auglýst en auglýsingin er nú endurtekin. Athugasemdir sem bárust á fyrri auglýsingatíma eru hluti af starfsleyfismálinu.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 31. ágúst 2017. Á vef Umhverfisstofnunar má finna auglýsta tillögu Umhverfisstofnunar, tilkynningu til Skipulagsstofnunar og matsskylduákvörðun hennar ásamt drögum af vöktunaráætlun. Umhverfisstofnun hefur ekki áform um að halda almennan kynningarfund um tillöguna á auglýsingatíma, en mun endurskoða þá ákvörðun ef eftir því verður óskað.

Tengd skjöl