Stök frétt

Landvarðanámskeið Umhverfisstofnunar verður haldið á útmánuðum 2018. Jón Björnsson þjóðgarðsvörður Þjóðgarðsins Snæfellsjökull sér um námskeiðið, undirbúning o.fl. ásamt kennurum sem koma að helstu þáttum námskeiðsins.  Námskeiðið spannar 110 kennslustundir sem raðast niður á 4 vikur. Það hefst 8. febrúar og lýkur 4. mars.  Nemendur sem ljúka landvarðanámskeiði ganga fyrir um landvarðastörf í þjóðgörðum og öðrum friðlýstum svæðum. Umhverfisstofnun hefur yfirumsjón með námskeiðinu.

Markmið

Markmið námskeiðsins er að tryggja framboð af hæfum landvörðum til starfa á friðlýstum svæðum. Kennt er samkvæmt námskrá Umhverfisstofnunar og reglugerðar um landverði, nr. 061/1990.

Starf að námi loknu

Allmargir landverðir eru ráðnir til starfa á friðlýstum svæðum ár hvert. Þeir sem ljúka landvarðanámskeiði öðlast rétt til að starfa sem landverðir. Eftirspurn eftir landvörðum og framboð reyndra landvarða ræður mestu um hve margir nýútskrifaðir fá vinnu. Námskeiðið er því ekki trygging þess að hljóta vinnu á friðlýstum svæðum, en möguleikarnir eru mun meiri.

Kennsla, stundaskrá: Kennslustundir

Námskeiðið verður kennt milli  kl. 17:00 og 22:00, alls 8 kvöld og fjórar helgar milli klukkan 09:00 og 16:00.  Fjögurra daga vettvangs- og verkefnaferð verður á námskeiðinu þar sem gist verður utan höfuðborgarsvæðisins. Námskeiðið verður boðið sem staðarnám og fjarnám. Fjarnemar hafa skyldumætingu í vettvangs- og verkefnaferðina og lokahelgina.  Fyrri hluti námskeiðsins (fyrstu tvær vikurnar) stendur einnig til boða í fjarnámi. Kennt verður á fimmtudags- og föstudagsköldum og allar helgar.

Staðsetning námskeiðs

Námskeiðið verður haldið á 5. hæð í húsnæði Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, Reykjavík.  Allir fyrirlestrar eru sendir beint út en verða teknir upp og settir á netið í lok hvers dags.

Nemendur

Nemendum af öllu landinu gefst kostur á að taka þátt.  Lágmarksaldur er að þátttakendur verði 20 ára á árinu.  Lágmarksfjöldi þátttakenda til að námskeið verði haldið er 25 og hámarksfjöldi 32. Fólk með áhuga á útivist, náttúru og náttúruvernd er hvatt til að sækja um námskeiðið. Mikilvægt er að landverðir búi að góðri samskiptahæfni og hafi ánægju af að vinna með fólki.

Námskeiðsgjöld

Námskeiðsgjöld eru 155.000 kr. og standa undir öllum kostnaði við námskeiðið. Námskeiðsgjald skal greiða eða semja um greiðslu þess áður en námskeiðið hefst, eða eigi síðar en 2. febrúar 2017.  Innifalið í námskeiðsgjaldi eru kennsla, kennslugögn og vettvangsferðir.  Einnig fæðis- og gistikostnaður vegna verkefnaferðarinnar.  Boðið er uppá kaffi og te á námskeiðsstað.  Nemendur eru hvattir til að hafa með sér nesti kvöld og helgar á Suðurlandsbraut. Þar er líka hægt að kaupa ávexti, skyr og annað smávægilegt.  Námskeiðið er styrkhæft hjá mörgum starfsmenntunarsjóðum.

Leiðbeinendur, val og reynsla

Leiðbeinendur eru reyndir starfsmenn og landverðir jafnt Umhverfisstofnunar sem annarra stofnana. Lögð er áhersla á leiðbeinendur með víðtæka reynslu og þekkingu á starfsemi verndarsvæða og störfum landvarða.  Margir þeirra hafa kennt árum saman á landvarðanámskeiðum.

Lögð er rík áhersla á að nemendur fái góða þjónustu og kennslu.  Jafnframt að námið sé  nytsamt og gagnist nemendum þó þeir starfi ekki við landvörslu. Leiðbeinendur eru meðvitaðir um þennan þátt og undirbúa kennslu sína með hag nemenda að leiðarljósi.

Mat á frammistöðu nemenda

Nemendur taka þátt í öllum hópverkefnum sem lögð verða fyrir.  Fjarnemar leysa sérverkefni í þeim námskeiðum sem lenda utan staðarlota. Sama gildir um staðarnema ef þeir mæta ekki. Einnig skulu nemendur leysa önnur verkefni sem kennarar leggja fyrir.  Heimavinna er í formi lestrar á ítarefni sem lagt verður fyrir, einstaklingsverkefna o.fl.  Mat verður lagt á frammistöðu nemenda á námskeiðinu. Þeir sem ekki standast matið geta ekki útskrifast.

Nánari upplýsingar um námskeiðið og skráning

Nánari upplýsingar um námskeiðið gefur Jón Björnsson í síma 591 2000 eða netfang: jonb@ust.is. Sótt er um þátttöku á námskeiðinu á þar til gerðu eyðublaði á heimasíðu Umhverfisstofnunar. Sem fyrr segir er hámarksfjöldi nemenda á landvarðanámskeiði 32. Skráð er á námskeiðið eftir röð umsókna. Lágmarksfjöldi nemenda er 25. Fellur námskeiðið niður ef tilskilinn fjöldi næst ekki. Skráningafrestur er til  31. janúar 2018. 

Dagskrá Landvarðanámskeiðsins

Megin umfjöllunarefni námskeiðsins er: Landverðir, helstu störf

  • Náttúruvernd og stjórnsýsla náttúruverndarmála
  • Verðmæti friðlýstra svæða, náttúra, menning og saga
  • Gestir friðlýstra svæða
  • Mannleg samskipti
  • Náttúrutúlkun, fræðsla á friðlýstum svæðum, bóklegt og verklegar æfingar
  • Náttúruvernd, verkfærin okkar
  • Vinnustaður landvarða
  • Öryggisfræðsla

Landvarðanámskeið 2018

 

Dags:

Vikudagur

Lota

Kennslutími

8. febrúar

Fimmtudagur

Staðar/Fjar

17:00 - 22:00

9. febrúar

Föstudagur

Staðar/Fjar

17:00 - 22:00

10. febrúar

Laugardagur

Staðar/Fjar

09:00 - 17:00

11. febrúar

Sunnudagur

Staðar/Fjar

09:00 - 17:00

15. febrúar

Fimmtudagur

Staðar/Fjar

17:00 - 22:00

16. febrúar

Föstudagur

Staðar/Fjar

17:00 - 22:00

17. febrúar

Laugardagur

Staðar/Fjar

09:00 - 17:00

18. febrúar

Sunnudagur

Staðar/Fjar

09:00 - 17:00

21. febrúar

Miðvikudagur

Staðarlota/skyldumæting

17:00 – 22:00

22. febrúar

Fimmtudagur

Staðarlota/skyldumæting

08:00 - 21:00

23. febrúar

Föstudagur

Staðarlota/skyldumæting

08:00 - 21:00

24. febrúar

Laugardagur

Staðarlota/skyldumæting

08:00 - 21:00

25. febrúar

Sunnudagur

Staðarlota/skyldumæting

08:00 - 16:00

1. mars

Fimmtudagur

Staðarlota/skyldumæting

17:00 - 22:00

2. mars

Föstudagur

Staðarlota/skyldumæting

17:00 - 22:00

3. mars

Laugardagur

Staðarlota/skyldumæting

09:00 - 17:00

4. mars

Sunnudagur

Staðarlota/skyldumæting

09:00 - 18:00

 

Námskeiðið er boðið í fjarnámi en skyldumæting er í vettvangs- og verkefnaferð 21. til 25. febrúar og lokadagana.

Tímaáætlunin er með fyrirvara um breytingar.  Stundaskrá verður birt eftir helgina 21.- 22. janúar.

Ef breytingar verða á dagskrá, liggja þær fyrir eigi síðar en 28. janúar.

Opnað verður fyrir skráningarform  á heimasíðu Umhverfisstofnunar, ust.is, 5. janúar næstkomandi.

(Myndin er tekin af landvörðum Umhverfisstofnunar í náttúruperlunni Mývatnssveit sl. sumar.)