Stök frétt

Mikill fjöldi ferðamanna heimsækir náttúruvættið Skógafoss dag hvern og gengur stór hluti þeirra upp á Skógaheiði. Vegna hlýinda og mikillar vætu síðustu daga er álag á gönguslóða og umhverfi hans á Skógaheiði ofan Fosstorfufoss gríðarlegt. Umrætt svæði  er hluti af gönguleið um Fimmvörðuháls og hefst lokunarsvæðið þar sem malarstígur endar, um 650 metra frá útsýnispalli ofan við Skógafoss. Umhverfisstofnun hefur gripið til þess ráðs að loka svæðinu vegna aurbleytu frá og með morgundeginum, 24. mars uns bót verður á. Lokunin er annars vegar framkvæmd af öryggisástæðum og hins vegar til að vernda gróður umhverfis gönguslóðann.

Stefnt er að því að endurskoða lokunina eigi síðar en innan tveggja vikna eða fyrr ef ástand breytist.

Lokunin er skv. 25 gr. a. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd.