Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur borist umsókn um stækkun á starfsleyfi Samherja fiskeldis að Núpsmýri í Öxarfirði og að Stað í Grindavík.

Um er að ræða stækkun á landeldisstöð Samherja fiskeldi að Núpsmýri í Öxarfirði úr 1.600t í 3.000t til framleiðslu á laxi eða bleikju. Sama á við um landeldisstöð Samherja fiskeldi að Stað í Grindavík þ.e stækkun úr 1.600t í 3.000t af laxi eða bleikju.

Unnið er úr umsókn og gerð starfsleyfistillögu. Tillaga að starfsleyfi verður auglýst opinberlega þegar hún liggur fyrir og gefst þá öllum tækifæri að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.