Stök frétt

Umhverfisstofnun lokaði göngustíg í Reykjadal í Ölfusi hinn 31. mars sl. Í kjölfar ástandsúttektar á svæðinu, dags. 12. apríl, sbr. og skýrslu dags. 30. apríl, var lokunin framlengd um 4 vikur, þ.e. til 12. maí 2018, í samráði við viðkomandi sveitarfélag, landeiganda og hagsmunaaðila og með staðfestingu ráðherra.

Starfsmaður Umhverfisstofnunar gerði aftur úttekt á svæðinu hinn 4. maí sl. (sjá skýrslu vegna ástandsúttektar svæðisins neðst í texta). Fram kemur að frost fer hægar úr jörðu en reiknað var með.

Umhverfisstofnun telur mikilvægt að umræddu svæði í Reykjadal í Ölfusi verði lokað áfram til 1. júní 2018. Ef svæðið verður í stakk búið til að taka á móti gestum án þess að hætta sé á frekari skemmdum, verður svæðið opnað fyrr.

Framlenging lokunar svæðisins krefst staðfestingar ráðherra samkvæmt 25. gr. a. laga um náttúrvernd nr. 60/2013, en þar segir m.a:

Ef veruleg hætta er á tjóni af völdum mikillar umferðar eða vegna sérstaklega viðkvæms ástands náttúru getur Umhverfisstofnun ákveðið að takmarka umferð eða loka viðkomandi svæði tímabundið fyrir ferðamönnum að fenginni tillögu hlutaðeigandi sveitarfélags eða landeiganda eða að eigin frumkvæði. Samráð skal haft um slíka ákvörðun við hlutaðeigandi sveitarfélag og fulltrúa ferðaþjónustu og útivistarfólks sem ætla má að hyggi á ferðir um svæðið. Ef um eignarland er að ræða skal ætíð haft samráð við eiganda lands eða rétthafa áður en ákvörðun er tekin. Takmörkunin eða lokunin skal að jafnaði ekki standa lengur en tvær vikur en ef nauðsyn krefur er heimilt að framlengja hana, að fenginni staðfestingu ráðherra“.

 Umhverfisstofnun óskar hér með eftir umsögn varðandi frekari framlengingu á umræddri lokun fyrir kl. 11:30, föstudaginn 11. maí 2018,svo að framlenging lokunar geti tekið gildi laugardaginn 12. maí nk.

Sjá ástandsskýrslu