Stök frétt

Síðastliðinn laugardag fór fram fjöruhreinsun á Rauðasandi fjórða árið í röð. Hreinsunin er samstarfsverkefni Hafna Vesturbyggðar,landeigenda á Rauðasandi, Náttúrustofu Vestfjarða og Umhverfisstofnunar. Verkefninu var hrundið af stað árið 2015 þegar svæðið frá Sjöundá að Hafnarvogi á austurhluta strandlengjunnar var hreinsað og síðan þá hafa samtals verið fjarlægðir um 85 m3 af rusli á sandinum. Í ár var byrjað á Bæjarodda neðan Saurbæjar og fjörur gengnar í vesturátt. Árlega er óskað eftir sjálfboðaliðum af svæðinu til að aðstoða við hreinsunina og hefur þáttakendum fjölgað ár frá ári, alls komu 29 einstaklingar að verkefninu í ár. Líkt og fyrri ár er stærstur hluti þess sem fjarlægt var af sandinum tengdur sjávarútvegi. Þar má nefna fiskikör og -kassa, baujur og bobbinga, gömul net og netakúlur. Einnig var talsvert um ílát úr plasti, stór sem smá.

Dagurinn sem valinn var til hreinsunar var einn af betri dögum sumarsins veðurfarslega og kom ekki deigur dropi úr lofti. Veður var stillt og glitti í sól síðdegis sem þykja tíðindi vestra þetta sumarið. Sjálfboðaliðar gengu til verks með margnota burðarpoka undir smárusl en drógu stærri hluti í hrúgur sem svo voru hirtar upp með stórvirkum vélum. Að hreinsun lokinni var boðið upp á samlokur, drykki og selaskoðun.

Hluti af fjöruhreinsuninni er unnin í tengslum við OSPAR-samninginn sem Ísland er aðili að en Rauðisandur er ein þeirra fjara á Íslandi sem árlega eru vaktaðar í tengslum við hann. OSPAR hluti verkefnisins er unninn á þann hátt að afmarkaður hefur verið 100 metra kafli á ströndinni sem hreinsaður er árlega, allt rusl greint og talið og niðurstöðurnar skráðar í gagnagrunn OSPAR að því loknu. Náttúrustofa Vestfjarða sér um vettvangsvinnuna fyrir hönd Umhverfisstofnunar. OSPAR samningurinn gengur út á verndun hafrýmis Norðaustur-Atlantshafsins, meðal annars með því að draga úr mengun frá landi og uppsprettum á hafi. Á hverju ári berst mikið af rusli í hafið og safnast saman á hafsbotni, úti á opnu hafi eða rekur upp í fjörur og þarf mjög víðtækt samstarf að koma til við lausn á vandamálinu, meðal annars með forvörnum.

Verkefnið er einnig eitt af Bláfánaverkefnum Vesturbyggðar en Bláfáninn er alþjóðleg umhverfisvottun með það meginmarkmið að vernda lífríki haf- og strandsvæða, draga úr umhverfisáhrifum, bæta öryggi og efla umhverfisvitund.