Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að nýju starfsleyfi fyrir Arctic Smolt hf. til framleiðslu á allt að 1.000 tonnum á ári af laxa- og regnbogasilungsseiðum í landeldi að Norður-Botni, Tálknafirði. Rekstraraðilinn er með 200 tonna leyfi á sama stað og er því að auka framleiðsluna. Tillagan ásamt umsókn rekstraraðila verður aðgengileg á vefsíðum Umhverfisstofnunar og Tálknafjarðarhrepps á tímabilinu 17. ágúst til  17. september 2018.

Umhverfisstofnun telur að mengun verði aðallega í formi lífræns úrgangs (bæði í föstu og uppleystu formi) frá eldinu og muni berast í viðtakann sem er Tálknafjörður. Að mati stofnunarinnar eru áhrif mengunarinnar afturkræf og munu því ekki hafa varanlega áhrif á umhverfið en jafnframt er hægt að grípa til aðgerða ef aðstæður breytast með ákvæðum í starfsleyfi.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 17. september 2018.

Tengd skjöl